Feb 11, 2021

Paradísarheimt 60/40


Paradísarheimt 60/40 er sýning sem opnuð var 25. september 2020, í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá útkomu bókar Halldórs Laxness og 40 ár frá frumsýningu sjónvarpsmyndar sem gerð var eftir bókinni. Á sýningunni eru gögn sem Björn G. Björnsson leikmyndateiknari hélt til haga
við tilurð og töku sjónvarpsmyndarinnar og afhenti Leikminjasafni Íslands sem nú er hluti af Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni.
Jafnframt eru á sýningunni handrit Halldórs Laxness að bókinni og sjá má myndskeið úr sjónvarpsmyndinni.

Sýningin er í samtarfi við Gljúfrastein - Hús skáldsins og Kvikmyndafélagið Umba. 
Sýningin stendur til 9. mars 2021.

Paradisarheimt_1.jpg
Til baka