Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Uncategorized

Velheppnuð Safnanótt

Uppákoma og kynning Leikminjasafnsins í Iðnó á Safnanótt föstudaginn var velsótt og velheppnuð í alla staði. Í salnum sagði Guðrún Ásmundsdóttir sögur úr Iðnó en hún byrjaði að leika þar árið 1958, Edda Björgvinsdóttir brá sér í gervi Hamlets og Ófelíu og söngvararnir Alexandra Chernyshova og Ásgeir Ágústson sungu lög úr leikritum og frá þeim…

Lesa meira : Velheppnuð Safnanótt

Svipir á ferð um Iðnó

Leikminjasafn Íslands stendur fyrir uppákomu og kynningu í Iðnó á Safnanótt kl. 19-23 föstudaginn 5. febrúar  en segja má að Iðnó sé einhver elsti safngripur í leiklistarsögu Íslands. Húsið var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897…

Lesa meira : Svipir á ferð um Iðnó

Jón Þórisson látinn

Jón Þórisson, leikmyndateiknari og hönnuður, lést á heimili sínu á nýársdag aðeins 67 ára að aldri.Jón var einn af frumkvöðlum stofnunar Samtaka um Leikminjasafn, sem leiddi til þess að Leikminjasafni Íslands var komið á fót 2003.  Hann sat í stjórn safnsins um árabil og lagði því til starfskrafta sína í fjölda sýninga allt frá stofnun…

Lesa meira : Jón Þórisson látinn

Ánægjuleg heimsókn

Sex manna hópur frá Leikminja- og tónlistarsafninu í Talllinn í Eistlandi heimsótti Ísland nýlega og var sameiginlegur fundur Leikminjasafns Íslands og hópsins haldinn í Iðnó í þann 10. september sl. Fundurinn var bæði gagnlegur og skemmtilegur og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.

Lesa meira : Ánægjuleg heimsókn

Saga Tjarnarbíós

Tjarnarbíó og Leikminjasafn Íslands hafa tekið höndum saman um að skrásetja sögu Tjarnarbíós og nú hefur fyrsti hluti sögusýningar um húsið litið dagsins ljós í gamla anddyrinu. Tjarnarbíó á sér stórmerkilega sögu, það var byggt sem íshús 1913 en breytt í kvikmyndahús 1942. Það hefur verið vettvangur dans og leiksýninga, tónleika og allskonar uppákoma og…

Lesa meira : Saga Tjarnarbíós

Ársfundur NCTD 2015

Ráðstefna og aðalfundur NCTD fór fram í Osló dagana 19.-20. maí og var fundarstaðurinn í Norska Ríkisleikhúsinu. NCTD (Nordisk Center for Teater Dokumentation) eru samtök safna og sviðslistasstofnana sem sérhæfa sig í varðveislu á leikminjum og skráningu á sögu sviðslista. Ráðstefnugestir voru 16 talsins frá fjórum Norðurlöndum, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi. Á ráðstefnunni kynntu…

Lesa meira : Ársfundur NCTD 2015

Aðalfundur Leikminjasafnsins

Aðalfundur Leikminjasafns Íslands árið 2015 verður haldinn í Iðnó miðvikudaginn 13. maí nk. kl. 16:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf: 1. Fundargerð síðasta aðalfundar2. Skýrsla stjórnar3. Afgreiðsla reikninga4. Starfsáætlun næsta árs5. Kosning stjórnar og skoðunarmanns reikninga6. Önnur mál Stjórnin

Lesa meira : Aðalfundur Leikminjasafnsins

Norrænt samstarf leikminjasafna

Nordiskt Center for Teaterdokumentation (NCTD) eru samtök norrænna minjasafna á vettvangi sviðslista. Þau skrá og miðla upplýsingum um sviðslistir á Norðurlöndunum, annast söfnun og miðlun bóka sem varða sviðslistir og þau tengja söfn sem sinna leiklist og sviðslistum almennt. Þau eru opin einstökum söfnum, samtökum og einstaklingum sem hafa áhuga á varðveislu leikminja, miðlun þeirra…

Lesa meira : Norrænt samstarf leikminjasafna

Jólin í leikhúsinu

Annað árið í röð bauð Leikminjasafnið til jólagleði í samvinnu við Borgarsögusafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn. Sunnudaginn 7. desember 2014 voru jólaljósin tendruð í stofunni í Smiðshúsi í Árbæjarsafni þar sem jólahúsið hennar Guðrúnar Sverrisdóttur var í öndvegi ásamt ýmsum fróðleik um jól í leikhúsum bæjarins á árum áður.   Sýningin var opin alla sunnudaga til jóla…

Lesa meira : Jólin í leikhúsinu

Benedikt Árnason

Benedikt Örn Árnason, leikari og leikstjóri, fæddist í Reykjavík 23. desember 1931. Hann lést 25. mars 2014 á Sóltúni. Benedikt lauk stúdentsprófi frá MR 1951 og hélt þá í þriggja ára leiklistarnám til London (Central School of Speech and Drama). Eftir að heim kom starfaði hann fyrst hjá LR, en fljótlega lá leið hans upp…

Lesa meira : Benedikt Árnason

Leiklist í Kjós

Þann 19. apríl 2014 var opnuð í Ásgarði í Kjós sýningin Leiklist í Kjós. Þar er fjallað um Loft Guðmundsson rithöfund og alnafna hans Loft Guðmundsson ljósmyndara en báðir voru fæddir í Kjós og komu báðir að leiklist og kvikmyndagerð. Leikstarf Leikklúbbs Kjósverja sem var starfræktur á árunum 1978-1984 er þó þungamiðja sýningarinnar. Sigþrúður Jóhannesdóttir…

Lesa meira : Leiklist í Kjós

Kvosin – Vagga leiklistar

Leikminjasafn Íslands opnaði nýja sýningu í húsinu Líkn í Árbæjarsafni á afmælisdegi Sigurðar málara (og safnsins) sunnudaginn 9. mars 2014. Sýningin er hluti af samstarfsverkefni Leikminjasafns Íslands og Minjasafns Reykjavíkur, sem hófst með sýningunni Jól í leikhúsinu í tengslum við jólahald Árbæjarsafns á aðventunni 2013. Kvosin – Vagga leiklistar er yfirskrift hinnar nýju sýningar og byggir…

Lesa meira : Kvosin – Vagga leiklistar