Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Uncategorized

Laxness og leiklistin

Um sýninguna Sýningin Laxness og leiklistin var opnuð í Iðnó 13. apríl 2002 Textagerð og sýningarskrá: Jón Viðar Jónsson, Björn G. BjörnssonHönnun sýningarspjalda: Ólafur J. EngilbertssonHönnun sýningar: Jón Þórisson Dagbók 13.4 – 1.5 2002 Á sýningunni Laxness og leiklistin í Iðnó voru leikminjar og leiklistarsögulegt efni í tilefni aldarafmælis Halldórs Laxness. Rifjuð voru upp kynni Halldórs af íslensku leikhúsi allt…

Lesa meira : Laxness og leiklistin

Aðalfundur 2019 og stofnfundur Vinafélags

Aðalfundur Leikminjasafns Íslands og stofnfundur Vinafélags um sviðslistaarfinn Aðalfundur Leikminjasafns Íslands var haldinn í gær 23. maí og var það síðasti aðalfundur safnsins, þar sem tillaga um að safnið verði lagt niður í núverandi mynd var samþykkt á fundinum. Aðdragandi þessarar niðurstöðu hefur verið nokkur og má lesa um hann í skýrslum stjórnar sem aðgengilegar…

Lesa meira : Aðalfundur 2019 og stofnfundur Vinafélags

Sönglög úr íslenskum leikritum

Sönglög úr íslenskum leikritumSafnanótt 2019 – Iðnó föstudaginn 8. febrúar kl. 19-23 Á Safnanótt verður Leikminjasafn Íslands með dagskrá í Iðnó þar sem fjallað verður um sönglög í íslenskum leikritum. Bæði er um lifandi tónlistarflutning að ræða en einnig verður leikin hljóðrituð tónlist og nokkrir reynsluboltar leggja orð í belg. Dagskrá:Kl. 19:00  Leikin lög úr…

Lesa meira : Sönglög úr íslenskum leikritum

Verk Jóns E. Guðmundssonar í Safnasafnið

Brúðusafni Jóns E. Guðmundssonar hefur verið komið fyrir á Tjarnarvöllum í nýju og fullkomnu geymsluhúsnæði Þjóðminjasafns Íslands. Þegar þeir flutningar  voru afstaðnir tók stjórn til við að skoða hvort möguleiki væri á að koma þeim gripum Jóns E. Guðmundssonar, tréskúlptúrum, málverkum, dúkristum og teikningum, sem ekki eru viðkomandi leiklistartengdu starfi Jóns, fyrir á viðurkenndu safni…

Lesa meira : Verk Jóns E. Guðmundssonar í Safnasafnið

Guðrún Þ. Stephensen er látin

Guðrún Þ. Stephensen, leikkona, er látin 87 ára að aldri. Guðrún fæddist 29. mars 1931 í Reykjavík og lést þann 16.apríl 2018. Foreldrar hennar voru Dóróthea Breiðfjörð og Þorsteinn Ö. Stephensen leikari en eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar er Hafsteinn Austmann myndlistarmaður og dætur þeirra eru Dóra og Kristín Hafsteinsdætur.Guðrún lauk prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1954.…

Lesa meira : Guðrún Þ. Stephensen er látin

Leikminjasafnið á Safnanótt 2018

Hlín Agnarsdóttir leiklistarfræðingur bauð til skapandi samtals um veruleikann handan við leikaraskap leikarans á Safnanótt 2018 í Iðnó. Hún kom m.a. við í fræðum á borð við málheimspeki, feminisma og sálgreiningu og talaði um samband „stórleikara“ 20. aldarinnar við #metoo hreyfingu nútímans.Handan við leikaraskapinn er MA-ritgerð Hlínar, þar sem fjallað er um sjálfsmynd leikhúsmannsins og…

Lesa meira : Leikminjasafnið á Safnanótt 2018

Vefurinn aftur aðgengilegur

Kæru vinir og velunnarar Leikminjasafns Íslands. Nú er vefsíða safnsins loksins orðin aðgengileg á ný eftir að hafa laskast og legið niðri frá í nóvember sl, nokkuð sem rekja má til kerfishruns fyrirtækisins sem hýsir vefinn -1984 ehf-. Eftir að hafa unnið hörðum höndum við björgunarstörf stöndum við í mikilli þakkarskuld við Eyjólf Kristjánsson tölvusnilling sem…

Lesa meira : Vefurinn aftur aðgengilegur

Ráðstefna og aðalfundur NCTD

Ráðstefna og aðalfundur NCTD fór fram í Stokkhólmi dagana 9.-10. maí og var fundarstaðurinn í Sviðslistasafninu (Scenkonstmuseet) sem er í gömlu virki við hliðina á Dramaten, sænska þjóðleikhúsinu. NCTD (Nordisk Center for Teater Dokumentation) eru samtök safna og sviðslistastofnana sem sérhæfa sig í varðveislu á leikminjum og skráningu á sögu sviðslista. Ráðstefnugestir voru 24 talsins…

Lesa meira : Ráðstefna og aðalfundur NCTD

Dagskrá um listdanssögu

Á síðasta fundi Leikminjasafns Íslands árið 2016 kom upp sú hugmynd að íslenskur listdans yrði heiðraður á Safnanótt 3. febrúar 2017. Árni Kristjánsson var fenginn til að halda utan um verkefnið og vera curator en honum til halds og traust voru aðrir meðlimir Leikminjasafnsins.Viðburðurinn fékk nafnið Dagskrá um listdanssögu Íslands. Leiðandi þema í öllum viðburðum…

Lesa meira : Dagskrá um listdanssögu

Þráinn Karlsson látinn

Þráinn Karlsson, leikarif. 24. maí 1939 – d. 22. maí 2016 Þráinn Karlsson fæddist á Akureyri 24. maí 1939. Foreldrar hans voru Karl Valdimar Sigfússon og Vigfúsa Vigfúsdóttir. Þráinn lauk námi í járnsmíði við Iðnskóla Akureyrar og hjá Vélsmiðjunni Atla árið 1959 og meistaranámi í sama fagi 1969. Þráinn kvæntist Ragnheiði Garðarsdóttur 25. maí 1968…

Lesa meira : Þráinn Karlsson látinn

Egner á Þingeyri

Á Þingeyri standa nú yfir sýningar á Kardemommubænum. Landsbókasafnið hefur í samstarfi við Leikminjasafnið lánað þangað spjöld sem voru á sýningu í safninu um Thorbjörn Egner höfund Kardemommubæjarins. Sýningin Thorbjörn Egner í 100 ár opnaði 12. desember 2012 í Þjóðarbókhlöðu í tilefni af því að 100 ár voru liðin frá fæðingu Thorbjørns Egner leikrita- og…

Lesa meira : Egner á Þingeyri

Erlingur Gíslason látinn

Erlingur Gíslason leikari lést á heimili sínu þann 8. mars síðastliðinn. Erlingur var á 83. aldursári en hann fæddist í Reykjavík þann 13. mars 1933, sonur  hjónanna Gísla Ólafssonar bakarameistara og Kristínar Einarsdóttur húsmóður. Erlingur lauk stúdentsprófi frá MR 1953, stundaði nám í íslensku við HÍ 1953-54 og lauk prófi í forspjallsvísindum frá HÍ 1954.…

Lesa meira : Erlingur Gíslason látinn