Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Leikminjasafn Íslands.
- Safnmark
- LMÍ 2021/10
- Titill
- Jón Múli Árnason. Einkaskjalasafn.
- Tímabil
- 1947-1994
- Umfang
Tíu öskjur.
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Leikminjasafn. LMÍ 2021/10. Jón Múli Árnason. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Jón Múli Árnasson (30.03.1921-01.04.2002), þulur og tónskáld.
- Lífshlaup og æviatriði
Jón Múli Árnasson fæddist á Kirkjubóli á Kolbeinstanga á Vopnafirði 31. mars 1921 og lést á Landspítalanum við Hringbraut á öðrum degi páska þann 1. apríl 2002. Hann hóf störf hjá RÚV 1946 og hafði umsjón með djassþáttum í Ríkisútvarpinu til starfsloka 1995. Með bróður sínum, Jónasi Árnasyni, skrifaði hann söngleiki á borð við Deleríum Búbónis og Járnhausinn. Samhliða samdi hann fjölda annarra vinsælla dægurlaga, var ötull félagsmálamaður og var einn af stofnendum Lúðrasveitar verkalýðsins.
Heimildir:
- Varðveislusaga
Jón Múli Árnason myndaði skjalasafnið en eftir andlát hans varðveitti Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, eiginkona hans, gögnin. Hún lést í ágúst 2020 og safnið fór í varðveislu afkomenda hans.
- Um afhendingu
Aðstandendur Jóns Múla Árnasonar afhendu safn hans Leikminjasafni Íslands í mars 2021.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Umfang og innihald:
Safnið er í tíu öskjum og skipt upp í eftirfarandi efnisflokka:
A. Leikhandrit
B. Djassþættir
C. Nótur
D. Annað efni (s.s. ræður, kynningar og kennsluefni)
- Grisjun
Ekkert hefur verið grisjað úr safninu eftir afhendingu.
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið.
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Samkvæmt reglum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um afritun.
- Tungumál
- Íslenska og enska.
Tengt efni
- Tengt efni
Ekki er vitað um neitt efni tengt Jóns Múla Árnassonar í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn.
- Not
Ekki er vitað um nein not.
Athugasemdir
- Athugasemdir
Safnið var upphaflega afhent í sjö öskjum en var endurskipulagt við skráningu, þó aðallega djassþættina, kynningarnar og ræðurnar. Flest gögn eru með handskrifuðum nótum og/eða leiðréttingum með eiginhendi Jóns Múla.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Sigríður Jónsdóttir flokkaði og skráði einkaskjalasafn Jóns Múla Árnassonar í mars og júlí árið 2021. Safnið er staðsett í geymslurými Leikminjasafns Íslands.
- Reglur eða aðferð
Skráð samkvæmt ISAD(G) staðli.
- Dagsetning lýsingar
- Júlí 2021.
Skjalaskrá
Öskjulisti
Askja A/1 – Leikhandrit- Deleríum Búbónis
Askja A/2 – Leikhandrit – Ýmis leikhandrit. Die Musik, Járnhausinn, Allra meina bót og Rjúkandi ráð.
Askja B/3 – Djassþættir – 1947 – 1965
Askja B/4 – Djassþættir – 1971 – 1976
Askja B/5 – Djassþættir – 1977 – 1981
Askja B/6 – Djassþættir – 1982 – 1992
Askja B/7 – Djassþættir – 1993 – 1994
Askja B/8 – Djassþættir – Ódagsett
Askja C/9 – Nótur – Ódagsett
Askja D/10 – Annað efni – 1956 – 1999 og ódagsett
Innihald
Nánari útlistun á innihaldi askjanna má finna í hlekknum hér fyrir neðan.