Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Handritasafn.
- Safnmark
- Lbs 2019/63
- Titill
- Sigurjón Jóhannsson. Einkaskjalasafn. Lbs 2019/63.
- Umfang
Ein mappa
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Handritasafn. Lbs 2019/63. Sigurjón Jóhannsson. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Sigurjón Jóhannsson (f. 1939), myndlistarmaður.
- Lífshlaup og æviatriði
Sigurjón Jóhannsson (21. maí 1939) fæddist á Siglufirði árið 1939. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1959 og lagði síðan stund á arkitektúr og myndlist á Ítalíu. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann og Myndlistarskólann við Freyjugötu til ársins 1963 og fór þá til London í námsferð fram á 1964.
Sigurjón var einn af stofnendum SÚM hópsins. Í gegnum árin hefur hann unnið við margs konar hönnun og á að baki afkastamikinn feril sem leikmyndahöfundur í leikhúsi og kvikmyndum.
Heimild:
„Sigurjón Jóhannsson myndlistarmaður“, Siglo.is, 8. febrúar 2010. Sótt 10. október 2019 á http://www.siglo.is/is/frettir/sigurjon_johannsson_myndlistarmadur.- Varðveislusaga
Varðveislusaga fram að afhendingu ekki þekkt.
- Um afhendingu
Leikminjasafn Íslands afhenti einkaskjalasafn Sigurjóns Jóhannssonar handritasafni Landsbókasafns Íslands árið 2019. Ekki er vitað hvenær gögnin bárust Leikminjasafni.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Safnið inniheldur teikningar og plaköt og er í einni möppu.
A. Teikningar og plaköt
Mappa 1:
Tvær teikningar eftir Sigurjón Jóhannsson.
Plakat f. Atómstöðina (Leikfélag Akureyrar).
Plakat frá Teatermuseet i Hofteatret í Kaupmannahöfn.- Grisjun
Ekkert hefur verið grisjað úr safninu eftir afhendingu.
- Viðbætur
Ekki er von á viðbótum.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið.
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Samkvæmt reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.
- Tungumál
- Íslenska og danska.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Marín Árnadóttir flokkaði og skráði einkaskjalasafn Sigurjóns Jóhannssonar í júní 2019.
- Dagsetning lýsingar
- 10. október 2019