Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Frú Stefanía – arfleifð á leiksviði – Viðburður í Iðnó

Frú Stefanía Guðmundsdóttir (1976-1926) í hlutverki Mögdu í Heimilinu (1902/1904)

Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur býður til hátíðardagskrár í Iðnó í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu og brautryðjanda í íslenskri leiklist.

Við minnumst Stefaníu, skyggnumst inn í sögu íslenskrar leiklistar og veitum viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til sviðslista.

Boðið verður uppá léttar veitingar.

🗓️ Sunnudaginn 6. desember 2026
⏰ kl. 13–15
📍 Hátíðarsalur Iðnó

DAGSKRÁ

• Stjórn minningarsjóðsins býður gesti velkomna.

• Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á Leikminjasafni, fjallar um ævi og störf Stefaníu Guðmundsdóttur.

• Magnús Þór Þorbergsson, leiklistarráðunautur Borgarleikhússins, segir frá rannsóknum á leiklist Vesturfara og fjallar um 130 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur.

• Sara Margrét Ragnarsdóttir fjallar um myndasafn fjölskyldunnar, Líf í myndum: Ljósmyndir Stefaníu Guðmundsdóttur og fjölskyldu.

• Sunna Borg flytur söguljóðið „Bergljót“ eftir Bjørnstjerne Bjørnson við píanóleik Alexanders Edelstein. Tónlist eftir Edvard Grieg og höfundur þýðingar er Þórarinn Eldjárn.

• Afhending Stefaníustjakans – viðurkenningar Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur, fyrir framúrskarandi framlag til sviðslista.

Verið hjartanlega velkomin í Iðnó!

Viðburðinn má finna hér á Facebook: https://fb.me/e/8166e71V8

Á myndinni má sjá Stefaníu Guðmundsdóttir (1876–1926) í hlutverki Mögdu í Heimilinu eftir Hermann Suderman (1857–1928) í uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur og leikstjórn Bjarna Jónssonar frá Vogi (1863-1926) (sem sá einnig um þýðingu) frá leikárinu 1901–1902. Frumsýnt í Iðnó 16. mars 1902 og sýnt 5 sinnum. Verkið var frumsýnt 16. mars 1902 og sýnt fimm sinnum en svo tekið upp aftur 6. febrúar 1904 og sýnt fjórum sinnum. Stefanía fór svo til Kaupamannahafnar um haustið það ár. Myndin er því líklega tekin einhvern tíman í kringum sýningarnar árið 1902 eða 1904. Myndin er Stereóskópmynd sem skoðuð var með sérstökum kíki sem sýndi myndina í þrívídd.