Stefanía Guðmundsdóttir (1876-1926) í hlutverki Úlrikku í Kinnarhvolssystrum eftir Carsten Hauch (1790-1872) í leikferð sinni til Kanada 1920-1921.
Frú Stefanía Guðmundsdóttir (1876-1926) var brautryðjandi í íslenskri leiklist og einn af stofnendum Leikfélags Reykjavíkur árið 1897. Hún steig sín fyrstu skref á leiksviði í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík, Gúttó, sem unglingur og tók þátt fyrstu leiksýningum nýstofnaðs Leikfélags Reykjavíkur nokkrum árum síðar. Hæfileikar hennar vöktu strax athygli og fyrstu árin var hún þekkt fyrir að leika svokallaðar „ærsladrósir“ en alvarlegri og stærri hlutverk biðu hennar.
Meðal þekktustu hlutverka Stefaníu voru Magda í Heimilinu, Nóra í Brúðuheimilinu, Kamelíufrúin í samnefndu leikriti, Áslaug í Nýársnóttinni, Ulrikka í Kinnarhvolssystrum, Steinunn í Galdra-Lofti og Frú X í samnefndu leikriti.
Frú Stefanía lést á Ljóslækningastofnun Niels Finsen í Kaupmannahöfn 16. febrúar 1926 eftir langvinn veikindi. Útförin fór fram við Dómkirkjuna í Reykjavík 9. febrúar. Árið 1997 kom út ævisaga Frú Stefaníu, Leyndarmál frú Stefaníu: Stefanía Guðmundsdóttir leikkona, samtíð og samferðarmenn eftir Jón Viðar Jónsson, fyrrum forstöðumann Leikminjasafnsins.
Aðstandendur frú Stefaníu afhentu skjalasafn hennar og fjölskyldu til Leikminjasafnsins sumarið 2025 og von er á viðbótum í fyllingu tímans. Einkaskjalasafn Stefaníu Guðmundsdóttur og fjölskyldu ber safnmarkið LMÍ 2025/13. Safnið inniheldur fjölmargar ljósmyndir og póstkort sem voru yfirfærð á stafrænt form og skráð af Söru Margréti Ragnarsdóttur, sem stundar MA nám í sagnfræði við Háskóla Íslands, síðastliðið sumar. Verkefnið var stutt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Myndirnar verða birtar á Myndavef Landsbókasafnsins í desemberbyrjun.
Eftirfarandi orð skrifuð af Valtý Stefánsson birtust í Morgunblaðinu 9. febrúar 1926, daginn sem frú Stefanía var borin til grafar:
„Þessi síðustu missiri átti hún ef til vill ekki von á því, að sjá landnám sitt „nýtt og vítt“ í hinu íslenska þjóðleikhúsi – enda auðnaðist henni það ekki. – Í dag, þegar Reykvíkingar Fylgja frú Stefaníu Guðmundsdóttur til grafar, rifja upp ánægjustundirnar, sem hún veitti þeim, þá hafa þeir það og hugfast, að lífshlutverk þessarar konu var svo mikið og svo vel af hendi leyst, að það lifir hjer í bæ, lifir meðal þjóðarinnar um ókomin ár.
Því hvort sem þjóðleikhús verður reyst fyrr eða síðar, og með hvaða hætti sem það kemst á, verður leikhúsið fyrst og fremst þeim að þakka, er fyrstir námu land leiklistasr á landi hjer, sem fyrst sýndu, að ísl. þjóð og ísl. menning elur og getur alið við brjóst sjer hreina, sanna, og göfuga leiklist.
Eftir leikvöld í Iðnó sendi eitt sinn góðskáldið Þorsteinn Erlingsson frú Stefaníu þessi stef:
Þann lífgjafarmátt á list og snilld,
og ljett verður skapið, og stundin mild,
eitt kvöld getur hlýdöggvað hvarminn,
og iljað oss inst í barminn.
Og þökk fyrir stundirnar, – þar var hlýtt, –
og þökk fyrir útsýnið nýtt og vítt,
með sólina á vorheiði sýnu,
og ljós yfir landnámi þínu.“
