Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Annáll íslenskrar leiklistarsögu

Hér eru greinar sem mynda saman vísi að annáli íslenskrar leiklistarsögu.

  • 1796 – Hrólfur eftir Sigurð Pétursson frumsýndur í Hólavallarskóla

    Skólinn var kenndur við Hólavöll og stóð á lóðinni þar sem nú er Suðurgata 20, spottakorn norðan við þann stað sem varð síðar í áratugi aðalgrafreitur Reykvíkinga (Kirkjugarðurinn við Suðurgötu, Gamli kirkjugarðurinn). Þetta var upphafið, en það átti sér aðdraganda.…

  • 1846 – Leiksýningar hefjast aftur í nýjum Reykjavíkurskóla

    Árið 1805 var skólinn fluttur frá Reykjavík til Bessastaða þar sem hann var næstu fjörutíu ár. Stiftsyfirvöldin töldu æskulýðinn betur settan í sveitasælunni en rétt ofan í þeim solli sem þreifst við dönsku kaupmannsbúlurnar í kaupstaðnum. Var fremur lítið um…

  • 1854 – Fyrsta opinbera leiksýning á Íslandi

    14. janúar árið 1854 var danski gamanleikurinn Pak (síðar nefndur Skríll) frumsýndur í Reykjavík. Fyrir þeirri sýningu stóð Jón Guðmundsson, ritstjóri Þjóðólfs, sem var aðalblað þjóðarinnar um miðja nítjándu öld og eitt helsta málgagn sjálfstæðisbaráttunnar.  Leikurinn var fluttur á íslensku og hafði Jón…

  • 1857 – Fyrstu leiksýningar á Ísafirði

    Reykjavíkingar höfðu forystu í leikhúsmálum, en aðrir kaupstaðir og byggðarlög fylgdu í kjölfarið. Ísafjörður varð snemma einn af helstu verslunarstöðum landsins og hin danska eða dansksinnaða yfirstétt stytti sér gjarnan vetrarstundirnar, þegar ekki sá til sólar vikum saman, með leikþáttum…

  • 1858 – Sigurður Guðmundsson málari sest að í Reykjavík

    Árið 1858 settist Skagfirðingurinn Sigurður Guðmundsson að í Reykjavík. Þó ungur væri, aðeins tuttugu og fimm ára gamall, átti hann að baki langt myndlistarnám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn.  Sigurður bjó því yfir einstakri þekkingu og færni sem brátt kom reykvískri…

  • 1860 – Fyrstu leiksýningar á Akureyri og í Eyjafirði

    18. nóvember 1860 var danski gamanleikurinn Intrigerne eftir J.C. Hostrup leikinn á Akureyri. Hann var endursýndur 27. desember sama ár ásamt öðrum dönskum gamanleik, Audiensen eftir Henrik Hertz. Leikið var á dönsku og voru þátttakendur ýmsir betri borgarar bæjarins. Aðalhvatamaður var danski verslunarstjórinn Bernhard…

  • 1862 – Útilegumennirnir eftir Matthías Jochumsson frumsýndir á Gildaskálanum í Reykjavík

    Ekkert íslenskt leikrit hefur notið sömu vinsælda og æskuverk Matthíasar Jochumssonar Útilegumennirnir, sem í síðari gerðum hefur jafnan gengið undir nafni aðalsöguhetjunnar, Skugga-Sveins. Þjóðin hefur ekki tekið slíku ástfóstri við nokkurt annað leikrit og lengi var vandfundið það íslenskt leiksvið sem Skugga-Sveinn…

  • 1866 – Kúlissusjóður stofnaður

    Kúlissusjóðurinn er merkilegt fyrirbæri í þróunarsögu íslensks leikhúss á 19. öld og hefur verið nefndur „fyrsti vísir að formlegri leikhússtofnun á Íslandi“. Sitthvað er þó á huldu um uppruna hans. Í bæjarfélagi, þar sem var ekkert fast leiksvið, gátu liðið…

  • 1871 – Nýársnótt Indriða Einarssonar frumsýnd í Lærða skólanum í Reykjavík

    Frumsýning Nýársnæturinnar eftir Indriða Einarsson er frægasti viðburður í leiksögu Lærða skólans á 19. öld. Þegar hér var komið sögu var aftur hlaupin gróska í leikstarf skólapilta eftir mikla deyfð í kjölfar pereatsins svonefnda 1850. Næstu ár á undan höfðu skáldmennin ekki…

  • 1890 – Fyrstu leiksýningar Íslendinga í Vesturheimi

    Vesturferðir Íslendinga hófust fyrir alvöru á áttunda og níunda áratug nítjándu aldar. Ekki leið á löngu áður en hinir nýju Vesturheimsbúar tóku að þjónusta Thalíu. Er almennt talið að fyrsta íslenska leiksýningin í Winnipeg hafi verið árið 1880 á Sigríði Eyjafjarðarsól eftir…

  • 1892 – Fyrsta Ibsen-sýning á Íslandi

    Góðtemplarareglan festi rætur á Íslandi um miðjan áttunda áratug aldarinnar og olli sannkallaðri byltingu í íslenskum félagsmálum. Félagar í henni reistu samkomuhús víða um land, þ. á m. í Reykjavík árið 1887. Í því mun hafa verið frá upphafi lítið…

  • 1893 – Breiðfjörðs-leikhús (Fjalakötturinn) tekið í notkun

    Breiðfjörðs-leikhús var kennt við byggingameistara þess og eiganda, Valgarð Ó. Breiðfjörð kaupmann, sem reisti það vestast í húsasamstæðu sinni Aðalstræti 8. Í daglegu tali bæjarmanna hét það þó lengst „Fjalakötturinn“ og festist það heiti að lokum við það. Eufemía Waage…

  • 1897 – Leikfélag Reykjavíkur stofnað

    Stofnun Leikfélags Reykjavíkur 11. janúar 1897 er einn mesti tímamótaviðburður íslenskrar leiklistarsögu. Fyrir tíma þess hafði leikstarfsemi höfuðstaðarins verið mjög óskipuleg og að mestu bundin við síðari hluta vetrar. Með tilkomu L.R. öðlaðist framsækin leikstarfsemi Reykjavíkur þá festu sem var…

  • 1907 – „Íslenska tímabilið“ í sögu L.R. hefst

    L.R. frumsýndi Nýársnótt Indriða Einarssonar í mjög endurskoðaðri gerð höfundar á jólum 1907. Sýningin varð geysivinsæl, enda hafði mikið verið í hana lagt af hálfu leikhússins, og hún var endursýnd hvað eftir annað næstu ár. Indriði Einarsson var bæði glaður…

  • 1912 – Fjalla-Eyvindur frumsýndur í Kaupmannahöfn

    Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar var frumsýndur í Reykjavík 26. desember 1911 og varð mikill sigur. Leikfélagið hafði áður sýnt Bóndann á Hrauni eftir sama höfund jólin 1908 við góðar viðtökur. Ekki er að efa að það hvatti höfundinn til dáða. Hann…

  • 1916 – Fyrsta barnaleikritið frumsýnt

    19. júní 1916 var sænski leikurinn Óli smaladrengur frumsýndur í Iðnó undir stjórn Stefaníu Guðmundsdóttur. Leikendur voru allir börn og lék Anna, dóttir Stefaníu, (Anna Borg) titilhlutverkið. Sýningin var liður í hátíðarhöldum í tilefni þess að eitt ár var þá…

  • 1917 – Leikfélag Akureyrar stofnað

    Árið 1907 var leikfélag stofnað á Akureyri (Leikfélag Akureyrar eldra). Bærinn hafði þá eignast nýtt og veglegt samkomuhús sem hefur alla tíð verið ein hans mesta höfuðprýði. Félag þetta starfaði af dugnaði í fáein ár og voru helstu forkólfar Vilhelm…

  • 1922 – Revíuöld hefst í Reykjavík

    Árið 1907 var leikfélag stofnað á Akureyri (Leikfélag Akureyrar eldra). Bærinn hafði þá eignast nýtt og veglegt samkomuhús sem hefur alla tíð verið ein hans mesta höfuðprýði. Félag þetta starfaði af dugnaði í fáein ár og voru helstu forkólfar Vilhelm…

  • 1923 – Lög um byggingu þjóðleikhúss samþykkt á Alþingi

    Sigurður Guðmundsson málari mun hafa orðið fyrstur manna til að kveða upp úr um nauðsyn þess að Íslendingar eignuðust „nationala scenu“, þjóðleikhús. En það kom í hlut lærisveins hans og vinar, Indriða Einarssonar, að bera drauminn fram til sigurs. Á…

  • 1924 – Fyrsti erlendi gestaleikstjórinn kemur til Íslands

    Jólin 1924 frumsýndi L.R. danska söngvaleikinn Einu sinni var (Der var engang – ) eftir Holger Drachmann. Það var danski leikarinn og leikstjórinn Adam Poulsen sem stýrði þeirri sýningu og þótti hún takast afar vel. Ekki féll öllum leikendum þó…

  • 1926 – Fyrsta Shakespeare-sýning á Íslandi

    Það var Matthías Jochumsson sem með þýðingum sínum á fjórum harmleikjum Shakespeares kynnti verk hans fyrstur fyrir Íslendingum, svo um munaði. Þýðingar hans á Macbeth, Hamlet, Othello og Rómeó og Júlíu voru prentaðar í Reykjavík á árunum 1874-1887. Þá þýddi…

  • 1927 – Haraldur Björnsson og Anna Borg útskrifast sem leikarar frá leiklistarskóla Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn

    Þó að L.R. hefði haldið uppi metnaðarfullu starfi um áratugi og góðar horfur virtust á því að Þjóðleikhúsið opnaði senn dyr sínar, fór því fjarri að almennur skilningur væri á nauðsyn þess að leikarar öfluðu sér menntunar í erlendum skólum…

  • 1931 – Fyrsta leikför Leikfélags Reykjavíkur út á land

    Leikferðir hafa tíðkast mun lengur hér á landi en margur hyggur. Þegar fyrir aldamótin 1900 má finna þess dæmi að menn brygðu sér í önnur byggðarlög með sýningar sem þeim fannst eiga erindi til annarra. Ekki hafa þessar ferðir verið…

  • 1934 – Óperettusýningar hefjast í Reykjavík

    Það kann að vera nokkurt fræðilegt álitamál hvað eigi að telja fyrstu óperettusýninguna – og raunar einnig óperusýninguna. Svo mikið er þó víst að á fjórða áratug aldarinnar og nokkuð fram á þann fimmta tekur flutningur léttra söngleikja mikinn fjörkipp…

  • 1940 – Lárus Pálsson kemur til starfa

    Lárus Pálsson hélt að loknu stúdentsprófi frá M.R. árið 1934 til náms við skóla Kgl. leikhússins í Kaupmannahöfn. Þaðan lauk hann leikaraprófi árið 1937. Hann starfaði næstu þrjú ár á dönsku sviði, fyrri tvö árin í Kgl. leikhúsinu, en hið…

  • 1941 – Félag íslenskra leikara stofnað

    Um 1930 mun fyrst hafa verið fitjað upp á því að stofna stéttasamtök leikara, en án árangurs. Er ekki ólíklegt að það hafi tengst stofnun Bandalags íslenskra listamanna árið 1928, en því var í upphafi skipt í þrjár deildir: rithöfunda,…

  • 1943 – Fjalakötturinn h/f stofnaður

    Revíusýningar lágu niðri í Reykjavík fram eftir fjórða áratugnum, en árið 1938 var enn blásið til sóknar og sýningar hafnar að nýju undir merkjum Reykjavíkurannáls. Burðarásar revíunnar að þessu sinni voru þeir Haraldur Á. Sigurðsson, einn vinsælasti skopleikari Reykvíkinga fyrr…

  • 1947 – Félag íslenskra listdansara stofnað

    Þær Stefanía Guðmundsdóttir og Guðrún Indriðadóttir voru báðar miklar áhugakonur um dans, jafnt almennan samkvæmisdans sem listdans. Þær kenndu báðar dans og æfðu dansa í leiksýningum þegar á þurfti að halda. Guðrún gerði t.d. dansa í sýningu Nýársnæturinnar árið 1907…

  • 1948 – Fyrsta leikför Íslendinga til útlanda

    Árið 1948 hélt Leikfélag Reykjavíkur í ferð til Helsinki með sýningu sína á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Það var að vísu ekki í fyrsta skipti sem íslenskir leikarar léku fyrir útlenda áhorfendur utan heimalandsins. Stefanía Guðmundsdóttir hafði t.d. sýnt…

  • 1950 – Bandalag íslenskra leikfélaga stofnað

    Áhugaleiklistin blómstraði víða um land á fyrri hluta tuttugustu aldar. Að vísu var misjafnt hversu snemma urðu til sérstök leikfélög í kaupstöðum, kauptúnum og byggðarlögum, en ein orsök þess var sú að leiksýningar reyndust oft drjúg tekjulind fyrir ýmis félög…

  • 1950 – Leikritasafn Menningarsjóðs hefur göngu sína

    Leikritaútgáfa skiptir leikhúsið að sjálfsögðu miklu máli, að ekki sé minnst á höfundana. Bókaútgefendur eru hins vegar sjaldnast jafn áhugasamir, enda markaður fyrir leikrit oftast miklu þrengri en fyrir annan skáldskap. Við þennan vanda hefur íslensk leikritaútgáfa strítt frá upphafi…

  • 1950 – Þjóðleikhúsið tekur til starfa

    Með stofnun Þjóðleikhússins náði leikhúsfólk loks því langþráða marki að hefja íslenska leiklist á atvinnustig. Fyrstu leikararnir voru fastráðnir að leikhúsinu frá 1. nóvember 1949; það voru þau Arndís Björnsdóttir, Indriði Waage, Haraldur Björnsson, Gestur Pálsson, Regína Þórðardóttir, Herdís Þorvaldsdóttir,…

  • 1952 – Listdansskóli Þjóðleikhússins stofnaður

    Fyrsti ballettmeistari Þjóðleikhússins var danskur, Erik Bidsted að nafni. Hann hóf störf við leikhúsið haustið 1952 og var hlutverk hans að semja og sjá um allan dans í almennum sýningunum, auk þess að kenna og þjálfa dansara. Hann samdi einnig…

  • 1954 – Íslenska brúðuleikhúsið hefur starfsemi sína

    Ekki verður sagt með vissu hvenær fyrsta leikbrúðusýningin fór fram á Íslandi. Hitt er ljóst að fyrsta brúðusýningin, sem vekur almenna athygli í Reykjavík, var sýning Kurt Ziers og nokkurra nemenda úr kennaradeild Handíðaskóla Íslands á Faust-leik árið 1941. Brúðurnar…

  • 1954 – Silfurlampinn veittur í fyrsta skipti

    Fyrsti ballettmeistari Þjóðleikhússins var danskur, Erik Bidsted að nafni. Hann hóf störf við leikhúsið haustið 1952 og var hlutverk hans að semja og sjá um allan dans í almennum sýningunum, auk þess að kenna og þjálfa dansara. Hann samdi einnig…

  • 1961 – Gríma hefur sýningar í Tjarnarbíói í Reykjavík

    Gríma var í rauninni aldrei formlegt leikfélag eða leikhópur, heldur fyrst og fremst félag ungs leikhúsfólks um að veita ferskum straumum inn í leikhúslífið. Það átti að gera með því að sýna ný verk erlendra höfunda, sem stóru leikhúsin tvö…

  • 1962 – Hart í bak eftir Jökul Jakobsson frumsýnt

    Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa vonuðu menn að það yrði íslenskri leikritun mikil lyftistöng. Þær vonir rættust ekki á meðan Guðlaugur Rósinkranz sat við stjórnvölinn; það var ekki fyrr en Sveinn Einarsson hafði tekið við af honum að leikhúsið tók…

  • 1964 – Leikfélag Reykjavíkur verður atvinnuleikhús

    Þegar Þjóðleikhúsið tók til starfa vonuðu menn að það yrði íslenskri leikritun mikil lyftistöng. Þær vonir rættust ekki á meðan Guðlaugur Rósinkranz sat við stjórnvölinn; það var ekki fyrr en Sveinn Einarsson hafði tekið við af honum að leikhúsið tók…

  • 1968 – Fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið

    30. september 1966 hóf Ríkisútvarpið sjónvarpsútsendingar. Það sendi í fyrstu út aðeins tvo daga í viku, en útsendingardögum fjölgaði fljótlega. Fimmtudagar voru þó sjónvarpslausir langt fram á áttunda áratuginn og voru útvarpsleikritin þá flutt af laugardagskvöldum yfir á fimmtudagskvöld. Sjónvarpið…

  • 1973 – Íslenski dansflokkurinn stofnaður

    Íslenski dansflokkurinn byggði á þeim grunni sem Listdansskóli Þjóðleikhússins hafði lagt, fyrstu árin undir stjórn Eriks Bidsted. Flokkurinn hafði fyrsta starfsár sitt aðstöðu í Félagsheimili Seltjarnarness, en var snemma tekinn undir verndarvæng Þjóðleikhússins. Í honum voru tólf dansarar.  Fyrsti stjórnandi…

  • 1973 – Leikfélag Akureyrar verður atvinnuleikhús

    Haustið 1973 voru átta leikarar ráðnir til L.A. í hálft starf. Það voru þau Aðalsteinn Bergdal, Þórhalla Þorsteinsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Gestur E. Jónasson, Arnar Jónsson, Saga Jónsdóttir, Þráinn Karlsson og Þórhildur Þorleifsdóttir. Aðrir starfsmenn voru Magnús Jónsson, leikhússtjóri, sem fyrstur…

  • 1974 – Inúk frumsýndur í Þjóðleikhúsinu

    Inúk var hópverkefni unnið undir stjórn Brynju Benediktsdóttur sem skrifaði texta ásamt Haraldi Ólafssyni mannfræðingi og leikarahópnum. Í flokknum voru auk Brynju þau Kristbjörg Kjeld, Helga E. Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson og Ketill Larsen. „Hópvinna“ var orðið hið mikla slagorð tímans…

  • 1975 – Alþýðuleikhúsið stofnað

    Alþýðuleikhúsið var stofnað á Akureyri 4. júlí 1975. Það frumsýndi fyrstu sýningu sína, Krummagull eftir Böðvar Guðmundsson á Neskaupstað 28. mars 1976, síðan var lagt af stað um landið. Var sýningum ágætlega tekið og leikið alls 62 sinnum á 44…

  • 1975 – Leiklistarskóli Íslands stofnaður

    Stofnun Leiklistarskóla Íslands er merkasti áfanginn í sögu íslenskrar leiklistarmenntunar. Framan af hafði þróunin verið hæg. Sú kynslóð, sem bar uppi íslenskt leikhús um miðbik aldarinnar, varð að sækja sér menntun til útlanda, þ.e. þeir sem á annað borð höfðu…

  • 1979 – Stundarfriður eftir Guðmund Steinsson frumsýndur

    Stundarfriður var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu undir leikstjórn Stefáns Baldurssonar 25. mars 1979 og hélt göngu sinni áfram allt til loka næsta leikárs. Þetta varð ein af vinsælustu sýningum leikhússins frá upphafi og sáu hana rúmlega 41.000 manns á 86 sýningum.…

  • 1980 – Íslenska óperan stofnuð

    Óperur, óperettur og söngleikir voru frá upphafi nokkuð reglubundinn þáttur í verkefnaskrá Þjóðleikhússins. Fyrsti erlendi leikflokkurinn, sem kom til landsins með stóra sýningu, var Stokkhólmsóperan með Brúðkaup Fígarós Mozarts í júní 1950. Henni var mjög vel tekið og ekki vafi…

  • 1989 – Leikfélag Reykjavíkur flytur í Borgarleikhúsið

    Flutningur L.R. í Borgarleikhúsið var langþráður draumur sem rættist því miður ekki með sama hætti og margir höfðu vonast til. Félagið hafði starfað við harla erfiðar aðstæður í Iðnó, aðstæður sem fullnægðu vitaskuld á engan hátt kröfum nútíma leikhúsrekstrar. En…

  • 2003 – Leikminjasafn Íslands stofnað

    Stofnun safns um íslenska leiklistarsögu er gamall draumur íslensks leikhúsfólks. Á fyrri hluta aldarinnar voru það einkum tveir menn sem töluðu fyrir honum, þeir Lárus Sigurbjörnsson og Haraldur Björnsson. Málflutningur þeirra fékk þó dræmar undirtektir, enda kannski ekki við því…

  • 2003 – Vesturport frumsýnir Rómeó og Júlíu í London

    Mikil gróska hefur verið í starfi leikhópa og leikhúsa utan hinna stærri og rótgrónari stofnana síðustu tíu-fimmtán árin. Þessir „hópar“, eða hvaða nöfn við kjósum að gefa þeim, hafa verið afar margvíslegir; sumir verið framtak og fyrirtæki eins manns, sumir…