Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Fréttir og viðburðir

Leiklistin og hafið

Sýning í Víkinni – Sjóminjasafni Reykjavíkur 2010 Járnhausinn eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni í Þjóðleikhúsinu 1964-65 Sýningin Leiklistin og hafið fjallaði um tengsl leiklistarinnar við hafið og var í samstarfi við Sjóminjasafnið Víkina. Auk sýningarinnar voru fluttar dagskrár með leik og söng úr íslenskum leikritum. Gunnar Eyjólfsson flutti mónólog úr Hart í bak. Leiklesinn…

Lesa meira : Leiklistin og hafið

Kvosin – Vagga leiklistar

Sýningar opnaðar í Aðalstræti 10 og í RáðhúsiReykjavíkur á Vetrarhátíð 2009 Íslensk leiklist á upphaf sitt í Kvosinni í Reykjavík. Þar fóru fyrstu leiksýningarnar fram, þar voru fyrstu íslensku leikritin sýnd, þar risu fyrstu leikhúsin, þar stigu fyrstu leikstjörnurnar fram í sviðsljósið og heilluðu áhorfendur. Langflest hinna gömlu leikhúsa eru nú löngu horfin af yfirborði…

Lesa meira : Kvosin – Vagga leiklistar

Leiklist á Akureyri

Akureyri um 1890 Sýningar Leikminjasafns Íslands á Akureyri 2008:Leiklist á Akureyri í Amtsbókasafninu – opnuð 2. febrúarSýning um leiklist norðanlands í Laxdalshúsi – opnuð 28. júní Árið 1859, hinn 26. desember, ritaði Sveinn Skúlason, þá ritstjóri Norðra á Akureyri, í blað sitt: …en í kaupstöðum þar sem margt fólk er að staðaldri ættu smátt og…

Lesa meira : Leiklist á Akureyri

Brúðulistahátíð Leikminjasafnsins

Sýning í Heilsuverndarstöðinni á Menningarnótt Leikminjasafnið stóð fyrir „opnu húsi“ og brúðulistahátíð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á menningarnótt og var hátíðin tileinkuð starfi Jóns E. Guðmundssonar. Var mjög mikil aðsókn allan daginn og komust færri að en vildu á brúðuleikhússsýningarnar sem boðið var upp á. Strengjaleikhúsið undir stjórn Messíönu Tómasdóttur flutti Bláa stúlkan tekur…

Lesa meira : Brúðulistahátíð Leikminjasafnsins

Svart og sykurlaust

Götuleikhús á Íslandi Götuleikhópurinn Svart og sykurlaust starfaði á árunum 1983-1986. Hópurinn var brautryðjandi hérlendis í götuleikhúsi í anda spænska leikhópsins Els Comediants sem hingað kom á Listahátíð árið 1980 og bandaríska leikhópsins Bread and Puppet sem hingað kom 1982. Svart og sykurlaust ferðaðist víða um land og kom fram á hátíðum og tónleikum eins…

Lesa meira : Svart og sykurlaust

Wolfgang Amadeus Mozart

Mozart-óperan á Íslandi Þann 27. janúar 2006 var þess minnst að 250 ár voru liðin frá fæðingu tónskáldsins Wolfgangs Amadeusar Mozarts. Leikminjasafn Íslands og Þjóðmenningarhúsiðum tóku höndum saman og héldu upp á þessi tímamót með sýningu í bókasal Þjóðmenningarhússins þar sem brugðið var upp mynd af sögu Mozart-óperunnar á íslensku leiksviði. Bæði Þjóðleikhúsið og Íslenska…

Lesa meira : Wolfgang Amadeus Mozart

Jón E. Guðmundsson

Leikbrúðu- og leiktjaldasýning Upphaf leikbrúðugerðar á Íslandi Jón E. Guðmundsson hefur sagt frá því að danskur maður hafi sýnt brúðuleik um Jeppa á Fjalli eftir Holberg á Eyrarbakka árið 1914. Hinsvegar fer engum öðrum sögum af þeirri sýningu og engin vakning mun þá hafa átt sér stað í að finna brúðuleikhúsi vettvang hér á landi.…

Lesa meira : Jón E. Guðmundsson

Helgi Tómasson

Helgi dansar í Dimmalimm í Þjóðleikhúsinu Sýning um feril dansarans og danshöfundarins Helgi Tómasson fæddist 8. október 1942 í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Tómas Snorrason bakarameistari og Dagmar Helgadóttir. Helgi hóf ungur nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins hjá ballettmeisturunum Lísu og Erik Bidsted en fyrsta hlutverk Helga í Þjóðleikhúsinu var Svanurinn…

Lesa meira : Helgi Tómasson

Lárus Ingólfsson

Píputau, pjötlugangur og diggadaríum Lárus Ingólfsson 1905 22. 6. 2005 Lárus Ingólfsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1905. Hann var óvenju fjölhæfur listamaður: einn vinsælasti revíuleikari og gamanvísnasöngvari þjóðarinnar um árabil og helsti leikmynda- og búningateiknari sinnar tíðar. Lárus er í raun og veru fyrsti Íslendingurinn sem á sér fullan starfsferil við leikmynda- og búningagerð.…

Lesa meira : Lárus Ingólfsson

Konunglegar mublur

Sýning í Þjóðminjasafni 2004 Poul Reumert í búningsherbergi sínu í Konunglega leikhúsinu. Á myndinnisjást húsgögnin sem nú eru orðin eign Leikminjasafnsins Minningargjöf um hjónin Poul Reumert og Önnu Borg Föstudaginn 5. nóvember 2003 var opnuð í Þjóðminjasafni Íslands sýning í samvinnu Leikminjasafns Íslands og Þjóðminjasafnsins. Meginuppistaða sýningarinnar eru glæsihúsgögn, sófi og sex stólar, sem lengi…

Lesa meira : Konunglegar mublur

Safnafaðir Reykvíkinga

Frumherji í fræðunum Lárus Sigurbjörnsson 2003 Fræðimaður, sem heldur inn á áður ókannað rannsóknasvið, er eins og landkönnuður á leið inn í ókunnugt land. Hvað á slíkur könnuður að taka til bragðs? Ætli hann byrji ekki á því að reyna að fá eins góða yfirsýn yfir svæðið og frekast er unnt, búa til gróft yfirlitskort,…

Lesa meira : Safnafaðir Reykvíkinga

Frumherji og fjöllistamaður

Sýning í Safnahúsinu á Sauðárkróki 2003 Sigurður Guðmundsson málari Þann 9. mars 2003 þegar 170 ár voru liðin frá fæðingu Sigurðar Guðmundssonar málara, var Leikminjasafn Íslands formlega stofnað á fundi í Iðnó. Fyrsta sýningin sem Leikminjasafnið setti upp var sýningin Frumherji og fjöllistamaður, Sigurður Guðmundsson 1833-2003, en hún var opnuð í Safnahúsinu á Sauðárkróki 27.…

Lesa meira : Frumherji og fjöllistamaður