Annað árið í röð bauð Leikminjasafnið til jólagleði í samvinnu við Borgarsögusafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn. Sunnudaginn 7. desember 2014 voru jólaljósin tendruð í stofunni í Smiðshúsi í Árbæjarsafni þar sem jólahúsið hennar Guðrúnar Sverrisdóttur var í öndvegi ásamt ýmsum fróðleik um jól í leikhúsum bæjarins á árum áður.
Sýningin var opin alla sunnudaga til jóla og hér [tengill] má sjá meira um hana.
Jólin í leikhúsinu
